Sagan okkar

Þar sem tímalaus glæsileiki mætir verðmætum minningum

Hugmyndin að baki Areia kviknaði hjá stofnanda okkar, Ernu Maríu, sem hefur deilt tíma sínum milli Kólumbíu og heimalands Íslands í mörg ár, og þráði að skapa tímalausa og hagkvæma skartgripi innblásna af blönduðum og líflegum menningarheimum hennar.

Skartgripir eru meira en bara skraut - þeir eru minningar, eru hluti af sjálfstjáningu og skapa sjálfsmynd okkar. Frá upphafi siðmenninga hefur mannfólk leitað í skartgripi sem leið til að varðveita minningar, tjá ást og segja sögur. Hjá Areia viljum við heiðra þessa hefð með því að skapa skart sem segir þína sögu, skapar minningar og endast lengi. Og þegar skartið hefur lokið sínum kafla hjá þér hvetjum við þig til að gefa það áfram eða endurvinna og búa til nýtt - svo sagan haldi áfram.

Skuldbinding við fegurð með tilgangi

Sérhver gripur er handgerður úr endurunnu 925 sterling silfri, vandlega smíðaður í fjölskylduverkstæði í Taílandi í eigu kvenna og undir forystu kvenna. Þetta samstarf gerir okkur kleift að varðveita handverksaðferðir og styðja jafnframt sanngjarnt og valdeflandi vinnuumhverfi. Sjálfbærni er ekki aukaatriði hjá okkur - hún er hornsteinn í okkar sýn. Frá efniviði skartsins til endurvinnanlegra, plastlausra umbúða er hvert smáatriði hugsað með jörðina í huga. Við erum stolt af því að bjóða upp á skartgripi sem eru ekki aðeins fallegir, heldur bera virðingu fyrir umhverfinu og handverskfólkinu sem búa skartgripina okkar.

Areia þýðir „sandur“ á portúgölsku — sem er áminning um glæsileika náttúrunnar, stöðugar umbreytingar og mismunandi form fegurðar hennar.

Uppgötvaðu skartgripi sem eru hannaðir til að segja sögur, hvetja til tengsla og endast kynslóð eftir kynslóð.