Sagan okkar
Areia varð til á milli tveggja stranda. Stofnandi okkar, Erna María, bjó árum saman á milli heimalandsins Íslands og Kólumbíu — tveggja landslaga sem gætu vart verið ólíkari en mætast þó á sama stað: í sandinum. Areia þýðir
„sandur“, og það er áminning sem við höldum fast í: fegurðin tekur á sig ótal myndir og er í sífelldri mótun.
Hönnunin okkar sækir í báða heima. Frá Íslandi koma litir sem birtast hljóðlega — mosi og sumarblóm, jökulbirta og norðurljós. Frá Kólumbíu koma gullið og litaauðgin sem býr allt um kring. Silfrið ber annan tóninn, gullhúðin hinn.
Skartgripir hafa alltaf verið leið fólks til að halda utan um það sem skiptir máli. Frá upphafi siðmenningar höfum við notað þá til að varðveita minningar, tjá ást og segja sögur. Areia heiðrar þá hefð með skarti sem er hannað fyrir daglegu stundina — eitthvað sem þú teygir þig í án umhugsunar, en aldrei án tilgangs.
Það sem við getum lofað
Sérhver gripur er handgerður í litlu upplagi úr endurunnu 925 sterlingsilfri. Hvert framleiðslulot er vottað af silfurbirgi okkar og silfrið berst okkur í gegnum aðfangakeðju með keðjuvottun Responsible Jewellery Council. Valdir gripir eru húðaðir með gulli (gold vermeil).
Skartið okkar er smíðað á fjölskylduverkstæði í Taílandi undir forystu kvenna, þar sem konur gegna öllum stjórnunarstöðum og eru tveir þriðju starfsfólksins. Verkstæðið er tekið út af óháðum aðila samkvæmt SMETA,
útbreiddasta úttektarkerfi um siðræn viðskipti — því loforð á að sannreyna,
ekki bara gefa.
Umbúðirnar okkar eru endurvinnanlegar og án plasts. Og þegar gripur hefur lokið sínum kafla hjá þér, gefðu hann áfram — eða láttu endurvinna hann í eitthvað nýtt, svo sagan haldi áfram.